Starfsmaður í viðhaldsdeild – Uppsjávarvinnslu Eskju
Eskja óskar eftir að ráða starfsmann í viðhaldsdeild uppsjávarvinnslu félagsins á Eskifirði. Um er að ræða fjölbreytt og krefjandi starf í öflugu teymi þar sem lögð er áhersla á fagmennsku, öryggi og stöðugan rekstur vinnslunnar.
Nánari upplýsingar
Hlynur Ársælsson, rekstrarstjóri uppsjávarvinnslu
✉️ [email protected]
Helstu verkefni og ábyrgð
- Viðhald og viðgerðir á vélum og búnaði í uppsjávarvinnslu
- Eftirlit með búnaði og bilanagreining
- Samvinna við framleiðslu- og viðhaldsteymi
- Þátttaka í fyrirbyggjandi viðhaldi og umbótaverkefnum
Menntunar- og hæfniskröfur
- Menntun í vélvirkjun eða rafvirkjun er kostur
- Reynsla af viðhalds- eða tæknistörfum er kostur
- Þekking á vélum, rafbúnaði og tækjabúnaði
- Færni í mannlegum samskiptum
- Hæfni til að starfa í teymi
- Dugnaður, vinnusemi og jákvætt viðhorf