Starfsmaður í upplýsingamiðstöð
Seyðisfjarðarhöfn leitar að metnaðarfullum og áhugasömum einstakingi til að sinna daglegum verkefnum Upplýsingamiðstöðvar ferðamanna og minjagripaverslun á Seyðisfirði. Í Upplýsingamiðstöðina koma einna helst ferðamenn á eigin vegum, ferðamenn á leið til landsins með Norrænu og einnig skemmtiferðaskipafarþegar.
Æskilegt er að viðkomandi geti starfað frá byrjun maí til lok september.
Starfið hentar jafnt konum sem körlum.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Upplýsingagjöf til ferðamanna
- Dagleg verkefni miðstöðvarinnar, þ.m.t. umsjón með þjónustu, sölu varnings og annað tilfallandi
- Upplýsingagjöf og samskipti við ferðaþjónustufyrirtæki og aðra hagaðila með það að markmiði að efla faglega ráðgjöf og aðstoð við ferðamenn
- Ýmis verkefni í samstarfi við yfirmann og samstarfsfólk
Menntunar- og hæfniskröfur
- Frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð sem og góðir skipulagshæfileikar.
- Þekking og áhugi á ferðaþjónustu, með sérstaka áherslu á Seyðisfjörð og á Austurland.
- Færni og geta til að vinna undir álagi og sinna mörgum viðfangsefnum.
- Góð tungumálakunnátta
- Góð færni í mannlegum samskiptum og rík þjónustulund.
- Reynsla af sambærilegum störfum er kostur
Laun eru samkvæmt samningi sveitarfélaga og hlutaðeigandi stéttarfélags.
Vinnutími fer fram á dagvinnutíma og um helgar (þegar skemmtiferðaskip eru í höfn).
Ráðningarform: Tímabundin ráðning.
Umsókn skal fylgja greinargóð skýrsla um fyrristörf og menntun og ábendingar um umsagnaraðila. Öllum umsóknum verður svarað og umsækjendum tilkynnt um ráðstöfun starfsins þegar ákvörðun hefur verið tekin.