
Starfsmaður í þjónustudeild – Ræsting – Egilsstaðir
Heilbrigðisstofnun Austurlands (HSA) óskar eftir að ráða starfsmann í störf hjá þjónustudeild HSA á Egilsstöðum. Starfshlutfall er 60% eða samkvæmt samkomulagi. Æskilegt að viðkomandi geti hafið störf 1. september.
Helstu verkefni og ábyrgð
Ræstingar hjá Heilbrigðisstofnun Austurlands á Egilsstöðum.
Hæfnikröfur
Lögð er áhersla á metnað í starfi, stundvísi, skipulögð vinnubrögð, jákvæðni og sveigjanleika. Lipurð og áreiðanleiki í samskiptum eru skilyrði. Íslenskukunnátta áskilin.
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og AFL Starfsgreinafélag hafa gert.
Umsóknum skal skilað rafrænt til HSA með því að fylla út umsóknarform á vefsíðu stofnunarinnar; www.hsa.is, undir flipanum Laus störf.
Öllum umsóknum verður svarað. Tekið er mið af jafnréttisstefnu HSA við ráðningar.
Tóbaksnotkun/notkun rafretta er ekki heimil á vinnutíma innan HSA.
HSA starfar á þremur fagsviðum; heilsugæslu-, hjúkrunar- og sjúkrasviði. Áhersla er lögð á samvinnu þvert á byggðarlög. Stofnunin þjónar rúmlega 11.000 íbúum frá Djúpavogi til Vopnafjarðar, auk ferðamanna sem sækja Austurland heim. Umdæmissjúkrahús Austurlands er í Neskaupstað. Á þjónustusvæði HSA eru auk þess fimm heilsugæslustöðvar, en alls eru starfsstöðvarnar ellefu talsins.
HSA vill byggja þjónustu sína á mannvirðingu, þekkingu og þverfaglegri samvinnu.
Starfshlutfall er 60%
Umsóknarfrestur er til og með 24.08.2020
Nánari upplýsingar veitir
Jóna Björt Friðriksdóttir – jonabf@hsa.is – 471-3028 & 867-1441
Emil Sigurjónsson – emils@hsa.is – 470-3053 & 895-2488
Heilbrigðisstofnun Austurlands
Egilsst. Sjúkrah. Ræsting
Lagarás 17
700 Egilsstaðir