Starfsmaður í þjónustudeild – Neskaupstaður – þvottahús

Starfsmaður í þjónustudeild – Neskaupstaður – þvottahús

Heilbrigðisstofnun Austurlands (HSA) óskar eftir að ráða starfsmann í þvottahús hjá þjónustudeild HSA í Neskaupstað. Starfshlutfall er 90% eða samkvæmt samkomulagi. Staðan er laus strax.

Helstu verkefni og ábyrgð
Vinna í þvottahúsi HSA í Neskaupstað.

Hæfnikröfur
Lögð er áhersla á metnað í starfi, stundvísi, skipulögð vinnubrögð, jákvæðni og sveigjanleika. Lipurð og áreiðanleiki í samskiptum eru skilyrði. Íslenskukunnátta áskilin.

Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og AFL Starfsgreinafélag hafa gert.
Umsóknum skal skilað rafrænt til HSA með því að fylla út umsóknarform á vefsíðu stofnunarinnar; www.hsa.is, undir flipanum Laus störf.
Öllum umsóknum verður svarað. Tekið er mið af jafnréttisstefnu HSA við ráðningar.

Tóbaksnotkun/Vape er ekki heimil á vinnutíma innan HSA.

HSA starfar á þremur fagsviðum; heilsugæslu-, hjúkrunar- og sjúkrasviði. Áhersla er lögð á samvinnu þvert á byggðarlög. Stofnunin þjónar rúmlega 11.000 íbúum frá Djúpavogi til Vopnafjarðar, auk ferðamanna sem sækja Austurland heim. Umdæmissjúkrahús Austurlands er í Neskaupstað. Á þjónustusvæði HSA eru auk þess fimm heilsugæslustöðvar, en alls eru starfsstöðvarnar ellefu talsins.

HSA vill byggja þjónustu sína á mannvirðingu, þekkingu og þverfaglegri samvinnu.

Starfshlutfall er 90%
Umsóknarfrestur er til og með 17.02.2020

Nánari upplýsingar veitir
Eva Mjöll Þorfinnsdóttir – [email protected] – 4701482
Emil Sigurjónsson – [email protected] – 4703053

Nesk. Sjúkrah. Þvottahús
Mýrargötu 20
740 Neskaupstaður

Smelltu hér til að sækja um starfið