Starfsmaður í tækniteymi

Fiskeldi Austfjarða og Laxar eru laxeldis fyrirtæki í sameiningarferli með fjölbreytta starfsemi á starfsstöðvum víðsvegar um land.

Fyrirtækin bjóða upp á krefjandi og skemmtileg störf með öruggum samkeppnishæfum launum.

Fyrirtækin styðja starfsfólk sitt til menntunar, þjálfunar og þróunar í starfi.

Fyrirtækin setja öryggi og gæði ofar öllu og vinna með virðingu, velferð og vellíðan að leiðarljósi.

Fyrirtækin hafa leyfi til að framleiða allt að 44.000 tonn af laxi í sjókvíum á Austfjörðum. Seiðaeldið er á Norður- og Suðurlandi. Sjóeldið er í Berufirði, Fáskrúðsfirði og Reyðarfirði.

Við þurfum kraftmikinn aðila í eftirfarandi stöðu:

Starfsmaður í tækniteymi

Þessi staða hentar þér ef þú:

  • Hefur áhuga á véla- og tæknibúnaði
  • Vilt vinna sjálfstætt og tileyra öflugu teymi
  • Vilt auka þekkingu þína, færni og möguleika
  • Vilt vinna í fjölbreyttu og skemmtilegu umhverfi

Ábyrgð og verkefni

  • Setja upp, gera við, skkipta um og þjónusta kerfi og búnað
  • Samskipti við birgja og þjónustuaðila tengda raf- og vélbúnaði fyrirtækisins
  • Búa til fyrirbyggjandi áætlanir og hafa eftirfylgni
  • Bilanagreiningar og úrbætur
  • Umsjón með framkvæmd viðhalds og endurbóta

Hæfniskröfur

  • Sveinsbréf í vélvirkjun eða sambærileg menntun
  • Reynsla af vinnu á vélbúnaði og vökvakerfum er kostur
  • Reynsla og þekking af stálsmíði og suðuvinnu er kostur

Æskileg hæfni og styrkleikar

  • Reynsla og/eða menntun í fiskeldi eða tengdum iðnaði
  • Góð samskiptahæfni, frumkvæði og uppbyggingarhugarfar
  • Góð færni til að vinna sjálfstætt og í teymum
  • Hugar að öryggi og gæðum

Við hvetjum alla sem hafa áhuga á að taka þátt í fjölbreyttri og ört vaxandi atvinnugrein að sækja um.

Umsóknarfrestur er til og með 19. apríl 2022.

Umsóknir sendist á [email protected] ásamt ferilskrá og kynningarbréfi

Secret Link