Starfsmaður í skólasel Grunnskóla Fáskrúðsfjarðar

Starfsmann vantar í skólasel Grunnskóla Fáskrúðsfjarðar frá og með 1. janúar 2020.
Starfið felst meðal annars í því að annast gæslu og skapa fjölbreytt viðfangsefni
með börnum í lengdri viðveru.

Reynsla og æskileg hæfni:
• Ánægja af starfi með börnum
• Frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð
• Ríkir samstarfs- og samskiptahæfileikar
• Sveigjanleiki og jákvætt viðhorf
• Snyrtimennska, dugnaður og ábyrgðarkennd

Um er að ræða u.þ.b. 45%. starf. Vinnutími er frá kl. 13:00-16:30.
Laun eru samkvæmt kjarasamningum Launanefndar sveitafélaga og viðkomandi
stéttafélags.
Umsóknarfrestur er til 27. desember.
Sótt er um starfið á ráðningavef Fjarðabyggðar – starf.fjardabyggd.is.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Eygló Aðalsteinsdóttir skólastjóri í síma
475-9020. Hægt er að senda tölvupóst á: [email protected].

Secret Link