Starfsmaður í fiskeldi á Reyðarfirði
Fiskeldi Austfjarða og Laxar Fiskeldi eita að starfsmanni í almennt fiskeldisstarf við fiskeldi fyrirtækjanna á Reyðarfirði.
Við leitum af duglegum, samviskusömum og jákvæðum liðsauka til að vinna með okkur þau verkefni sem fiskeldisfólk sinnir á Austfjörðum.
Starfið felur í sér að sinna öllum almennum eldisstörfum, taka þátt í að ná þeim líffræðilegu og fjárhagslegu markmiðum sem sett eru og jafnframt að tryggja öryggi og góða umhirðu á vinnustað.
Unnið er í 1 viku og frí í 1 viku á 12 klst. vöktum.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Sinna öllum almennum eldisstörfum; þrif, lagfæringar, skráningar, skýrslugerð og fleira
- Tryggja öryggi og velferð fisks og fólks
- Tryggja öryggi og góða umhirðu á vinnustað
- Auk þessa má starfsmaður búast við að óskað sé eftir að hann gangi tímabundið í önnur verk og sinni öðrum verkefnum s.s. sækja námskeið, aðstoða verktaka, aðstoða nýliða, hjálpa til á öðrum stöðvum og fleira.
Menntunar- og hæfniskröfur
- metra skipstjórnarréttindi er kostur
- Reynsla og þekking sem nýtist í starfi
- Reynsla, þekking og skilningur á fiskeldi er kostur
- Frumkvæði, áhugi og metnaður
- Góð samskiptafærni og jákvætt hugarfar
- Geta til að vinna sjálfstætt og í teymum
Fríðindi í starfi
- Heilsu- og menntunarstyrkir
- Fæði
- Fjölskylduvænn vinnustaður
- Góð vinnuaðstaða og útivist
Fiskeldi Austfjarða, Laxar Fiskeldi og Rifós eru laxeldisfyrirtæki í sameiningaferli með fjölbreytta starfsemi á starfsstöðvum á suður- og norðurlandi, austfjörðum og með skrifstofur í Grósku nýsköpunar- og hugmyndahúsi í Reykjavík.
Alls starfa 120 einstaklingar í fyrirtækinu í fjölbreyttum störfum og deildum. Starfið sem um ræðir tilheyrir sjódeild og er á Reyðarfirði.
Fyrirtækin bjóða upp á krefjandi og skemmtileg störf með öruggum samkeppnishæfum launum og styðja starfsfólk sitt til menntunar, þjálfunar og þróunar í starfi.
Fyrirtækin setja öryggi og gæði ofar öllu og vinna með virðingu, velferð og vellíðan að leiðarljósi.
Við hvetjum öll kyn til að sækja um.
Nánari upplýsingar veitir Ingi Steinn Freysteinsson [email protected]
Umsóknarfrestur er til og með 26. apríl 2023 og hægt er að sækja um starfið í gegnum ráðningarvef Alfreðs: Starfsmaður í fiskeldi á Reyðarfirði | Fiskeldi Austfjarða hf. (alfred.is)