Fellabær

Starfsmaður í dagþjónustu hjá Hlymsdölum

Starfsmaður í dagþjónustu hjá Hlymsdölum

Laust er til afleysingar í eitt ár, fullt starf (100%) í Hlymsdölum Egilsstöðum. Markmið starfsins er halda utan um starfsemi eldhús, þrif, bakstur og innkaup. Einnig að veita notendum í dagþjónustu, félagslegan og persónulegan stuðning og eru þarfir og óskir þeirra höfð að leiðarljósi í daglegu starfi. Æskilegt er að starfsmaður geti hafið störf 1.janúar 2021

Félagsmiðstöðin Hlymsdalir er til húsa við Miðvang 6, Egilsstöðum. Í Hlymsdölum er starfrækt félagsstarf fyrir eldri borgara skv. lögum um málefni aldraðra. Næsti yfirmaður er forstöðumaður Hlymsdala.

 

Helstu verkefni:

  • Hluti af daglegum verkefnum er vinna í eldhúsi m.a. annast innkaup á matvöru og bakstur.
  • Starfsmaður hefur umsjón með þrifum í eldhúsi.
  • Framfylgir hlutverki og markmiðum þeirrar þjónustueiningar sem hann starfar á, undir stjórn forstöðumanns og í samvinnu við hann og aðra starfsmenn dagþjónustunnar.
  • Leitast við að auka lífsgæði og sjálfstæði dagþjónustunotenda og stuðla að valdeflingu í daglegu lífi þeirra.
  • Veitir dagþjónustunotendum persónulegan stuðning við athafnir daglegs lífs sem sniðinn er að þörfum, aldri, óskum og væntingum hvers og eins.
  • Fylgir þeim vinnureglum sem ákveðnar eru á hverri þjónustueiningu.
  • Tileinkar sér nýjar nálganir og vinnubrögð í málefnum aldraðra.
  • Kappkostar að eiga gott samstarf og samskipti við dagþjónustunotendur, fjölskyldur þeirra og aðra samstarfsaðila.

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Þekking og reynsla sem nýtist í starfi er kostur.
  • Þekking á málaflokki aldraða er kostur.
  • Góð hæfni í mannlegum samskiptum, hæfileiki til samvinnu, sveigjanleika og tillitssemi.
  • Frumkvæði í starfi, skipulagshæfileikar, sjálfstæð vinnubrögð og hæfileiki til miðlunar upplýsinga.

 

Launakjör eru samkvæmt kjarasamningum sveitarfélagsins við viðkomandi stéttarfélag.

Einstaklingar af öllum kynjum eru hvött til að sækja um stöðuna.

 

Nánari upplýsingar veitir forstöðumaður Hlymsdala Múlaþings, sími 4700798 eða [email protected]

 

Umsóknarfrestur er til og með 18.desember 2020.

 

Öllum umsóknum skal fylgja yfirlit yfir nám og/eða fyrri störf og rökstuðningur fyrir hæfni viðkomandi í starfið. Umsóknir skulu sendar á [email protected].

 

Umsækjendum er bent á að kynna sér fræðslubréf um vinnslu Múlaþings á persónuupplýsingum starfsumsækjenda, sem finna má á heimasíðu sveitarfélagsins www.mulathing.is

Secret Link