Starfsmaður í býtibúr – Neskaupstaður – Sjúkradeild

Starfsmaður óskast í býtibúr sjúkradeildar Umdæmissjúkrahúss Austurlands í Neskaupstað. Starfshlutfall er 50-70%.
Vaktavinna þar sem unnin er önnur hver helgi og er vinnutími frá kl. 8:00 til 16:00. Ráðningartími er frá 1. júlí 2020 eða eftir nánara samkomulagi.

Helstu verkefni og ábyrgð
Almenn störf í býtibúri og tilfallandi störf á sjúkradeild.

Hæfnikröfur
Lögð er áhersla á metnað í starfi, skipulögð vinnubrögð, jákvæðni og sveigjanleika. Lipurð og áreiðanleiki í samskiptum eru skilyrði. Íslenskukunnátta áskilin.

Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og AFL Starfsgreinafélag hafa gert.
Öllum umsóknum verður svarað. Tekið er mið af jafnréttisstefnu HSA við ráðningar. Áskilinn er réttur til að hafna umsóknum ef einstaklingar uppfylla ekki framangreind skilyrði.
Tóbaksnotkun eða notkun rafretta er ekki heimil á vinnutíma innan HSA.

Starfshlutfall er 70%
Umsóknarfrestur er til og með 09.03.2020

Nánari upplýsingar veitir
Þórhalla Ágústsdóttir – [email protected] – 470 1453 / 891 9419
Sigríður Kristinsdóttir – [email protected] – 470 1450 / 864 0239

Nesk. Sjúkradeild
Mýrargötu 20
740 Neskaupstaður

Smelltu hér til að sækja um starfið