Starfsmaður á skíðasvæðið í Oddsskarði

Langar þig að vinna í frábærri vinnu á fallegasta skíðasvæði Íslands?

Skíðamiðstöðin Oddsskarði óskar eftir að ráða til sín starfsfólk fyrir skíðaveturinn 2023-2024.

Í boði eru 60% til 80% störf. Einnig eru í boði störf í tímavinnu.

Vinna fer fram seinnipart dags og um helgar.

Menntunar- og hæfniskröfur

  • Umsækjendur þurfa að hafa góða þjónustulund
  • Geta unnið sjálfstætt og undir álagi
  • Hafa gaman af útiveru
  • Mikilvægt er að viðkomandi eigi auðvelt með mannleg samskipti, geti lesið í umhverfi sitt, sýni frumkvæði í starfi og sé tilbúin að takast á við skemmtilegt starf
  • Gerð er krafa um gott orðspor og að framkoma og athafnir á vinnustað og utan hans samrýmist starfinu
  • Bílpróf er nauðsynlegt

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Lyftuvarsla, uppsetning í byrjun dags og frágangur í lok dags
  • Skálavarsla, gera klárt fyrir opnun innandyra og aðstoða í skíðaleigu- og afgreiðslu
  • Aðstoða gesti við að komast í og úr skíðalyftum ásamt stjórnun á skíðalyftum
  • Önnur tilfallandi verkefni

Umsóknarfrestur er til 1. desember 2023 og sótt er um starfið í gegnum ráðningarvef Fjarðabyggðar: Starfsmaður á skíðasvæðið í Oddsskarði (fjardabyggd.is)

Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og viðeigandi stéttarfélags.

Nánari upplýsingar um starfið veitir Jóhann Ragnar Benediktsson forstöðumaður, í síma 862 0363 eða í tölvupósti [email protected]