Starfs­maður á rétt­inda­sviði – Neskaupstaður

Stapi lífeyrissjóður óskar eftir að ráða starfsmann á réttindasviði á skrifstofu sjóðsins í Neskaupstað.

 

Starfið heyrir undir forstöðumann réttindasviðs.

Starfssvið

  • Símsvörun.
  • Upplýsingagjöf til sjóðfélaga varðandi réttindi og sjóðfélagalán.
  • Almenn þjónusta við sjóðfélaga, skráning upplýsinga og úrskurður lífeyris.

Menntunar- og hæfniskröfur

  • Menntun sem nýtist í starfi, háskólamenntun kostur.
  • Nákvæm og öguð vinnubrögð.
  • Jákvætt viðmót og hæfni í samskiptum.
  • Gott vald á íslensku og ensku í ræðu og riti.
  • Frumkvæði og metnaður.
Fyrirtækið / stofnunin

Stapi lífeyrissjóður varð til með sameiningu Lífeyrissjóðs Austurlands og Lífeyrissjóðs Norðurlands árið 2007. Starfssvæði sjóðsins nær frá Hrútafirði í vestri að Skeiðarársandi í austri. Sjóðurinn nær þannig til allra byggðakjarna á Norður- og Austurlandi. Eignir Stapa nema ríflega 250 milljörðum króna. Virkir sjóðfélagar eru um 15 þúsund og lífeyrisþegar rúmlega 10 þúsund talsins. Á skrifstofum Stapa á Akureyri starfa 18 starfsmenn og í Neskaupstað starfar einn starfsmaður

Umsókn

Umsókn um starfið þarf að fylgja ítarleg starfsferilsskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni viðkomandi í starfið.

Umsóknarfrestur er til og með 20. apríl 2020

 

Secret Link