Starfsmaður á heimili fyrir fatlað fólk
Fjölskyldusvið Fjarðabyggðar leitar eftir metnaðarfullum og áhugasömum einstaklingi til tímabundins starfs í vaktavinnu. Um er að ræða 40% stöðu í vaktavinnu út desember 2023. Æskilegt er að einstaklingur geti tekið vaktir bæði í Neskaupstað og á Reyðarfirði.
Starfið er fjölbreytt og skemmtilegt. Vinnan felst í því að aðstoða einstaklinga, eftir þörfum, við athafnir daglegs lífs, hjálpa þeim að skipuleggja og halda heimili, ásamt því að veita þeim aðstoð við að vera virkir þátttakendur í samfélaginu. Unnið er eftir hugmyndafræðinni Þjónandi leiðsögn með áherslu á að íbúum líði vel í þægilegu og öruggu umhverfi heimilis síns.
Í starfinu felst einnig möguleiki á afleysingu við félagslega heimaþjónustu eldra fólks.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Veita íbúum stuðning við athafnir daglegs lífs
- Fylgja eftir þjónustuáætlunum og verklagsreglum
- Starfa samkvæmt hugmyndafræði um þjónandi leiðsögn og sjálfstætt líf
- Virkja íbúa til þátttöku í samfélaginu
Hæfniskröfur
- Áhugi á málefnum fatlaðs fólks og vilji til að starfa með fólki
- Hæfni í mannlegum samskiptum
- Frumkvæði, sjálfstæði og samviskusemi
- Mikilvægt er að starfsmenn tali og skilji íslensku
- Hreint sakavottorð
Starfslýsing starfsmaður á heimili fyrir fatlað fólk
Umsóknarfrestur er til og með 27. ágúst 2023. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.
Öll kyn eru hvött til að sækja um starfið. Laun eru samkvæmt gildandi kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga við viðkomandi stéttarfélag.
Frekari upplýsingar veitir Anna Guðlaug Hjartadóttir, forstöðumaður búsetuþjónustu fatlaðra: [email protected] eða í síma 844 4845.