Starfskraftur við þjónustumiðstöð
Þjónustumiðstöðin Borgarfirði eystri leitar að starfskrafti í 100% framtíðarstarf.
Við leitum eftir öflugum og drífandi einstaklingi sem sýnir metnað og frumkvæði í starfi. Næsti yfirmaður er verkstjóri þjónustumiðstöðvar.
Æskilegt er að starfskraftur geti hafið störf í maí nk.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Vigtun sjávarfangs skv. Lögum og skil á skýrslum því tengdu
- Umhirða og viðhald eigna sveitarfélagsins
- Viðhald veitna og gatna ofl.
- Umsjón með viðhaldi á smávélum.
- Önnur tilfallandi störf í þjónustumiðstöð, m.a. afleysingar á þjónustubifreið, viðhald á opnum svæðum, snjómokstur o.fl.
Menntunar- og æfniskröfur
- Viðkomandi þarf annað hvort að hafa réttindi sem löggiltur vigtarmaður eða vera reiðubúinn til að faa á námskeið til öflunar slíkra réttinda.
- Bílpróf
- Mikil samskipta- og samstarfshæfni.
- Góð almenn tölvukunnátta
- Frumkvæði, sjálfstæ og öguð vinnubrögð
- Rík þjónustulund og góð framkoma
- Góð íslensku- og enskukunnátta í máli og ritun
Laun eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélags.
Einstaklingar af öllum kynjum eru hvattir til að sækja um stöðuna.
Nánari upplýsingar veitir Björn Skúlason verkstjóri á netfanginu [email protected] eða í síma 470 0722
Öllum umsóknum skal fylgja yfirlit yfir nám og/eða fyrri störf og kynningabréf.
Umsækjendum er bent á að kynna sér fræðslubréf um vinnslu Múlaþings á persónuupplýsingum starfsumsækjenda, sem finna má á heimasíðu sveitarfélagsins www.mulathing.is