Starfskraftur við þjónustumiðstöð

Þjónustumiðstöð Múlaþings leitar að starfskrafti í 100% framtíðarstarf á Borgarfirði eystri.

Næsti yfirmaður er yfirverkstjóri þjónustumiðstöðvar Múlaþings.

Æskilegt er að starfskraftur geti hafið störf sem fyrst.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Umhirða og viðhald eigna sveitarfélagsins
  • Viðhald veitna og gatna ofl.
  • Viðhald á smávélum
  • Önnur tilfallandi störf í þjónustumiðöstöð, m.a. afleysingar á þjónustubifreið, viðhald á opnum svæðum, snjómostur, vigtun sjávarfangs o.fl.

Menntunar- og hæfniskröfur

  • Bílpróf skilyrði
  • Reynsla af viðhaldi og verklefgum framkvæmdum æskileg
  • Iðnmenntun sem nýtist í starfi er kostur
  • Mikil samskipta- og samstarfshæfni
  • Góð almenn tölvukunnátta
  • Frumkvæði, sjálfstæð og öguð vinnubrögð
  • Rík þjónustulund og góð framkoma
  • Góð íslensku- og enskukunnátta
  • Viðkomandi þarf annað hvort að hafa réttindi sem löggiltur vigtarmaður eða vera reiðubúinn til að fara á námskeið til öflunar slíkra réttinda

Laun eru samkvæmt kjarasamningiSambands íslenskra sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélags.

Einstaklingar af öllum kynjum eru hvött til að sækja um stöðuna.

Nánari upplýsingar veitir Björn Skúlason verkstjóri á netfanginu [email protected] eða í síma 470 0722.

Öllum umsóknum skal fylgja yfirlit yfir nám og/eða fyrri störf og kynningabréf.

Umsækjendum er bent á að kynna sér fræðslubréf um vinnslu Múlaþings á persónuupplýsingum starfsumsækjenda, sem finna má á heimasíðu sveitarfélagsins www.mulathing.is

Umsóknarfrestur er til 27. maí 2022 og sót er um starfið í gegnum ráðningarvef Alfreðs: Starfskraftur við þjónustumiðstöð | Þjónustumiðstöð Múlaþings | Fullt starf Borgarfjörður (eystri) | Alfreð (alfred.is)

Secret Link