Starfsfólk óskast – Félagsþjónusta Fljótsdalshérað

Félagsleg heimaþjónusta, um er að ræða 60% – 100% starf. Starfið felst meðal annars í aðstoð við
heimilishald og persónulega umhirðu ásamt því að veita félagsskap.

Búsetuþjónustu fatlaðs fólks, um er að ræða vaktavinnu í allt að 100 % starfshlutfalli, en einnig
eru í boði hlutastörf. Starfið felur í sér aðstoð til fatlaðs fólks við athafnir daglegs lífs s.s. heimilisstörf,
persónulega aðstoð, félagslega þátttöku og tómstundir.

Liðveisla, tímavinna. Liðveisla felst í því að rjúfa félagslega einangrun og aðstoða einstaklinginn við
að taka þátt í ýmis konar uppbyggilegu tómstundastarfi s.s. útivist og hreyfingu. Hver einstaklingur
fær u.þ.b. tvær til fjórar klst. á viku í liðveislu.

Störfin eru laus nú þegar eða eftir nánari samkomulagi.

Hæfniskröfur

• Sveigjanleiki og færni í mannlegum samskiptum.
• Frumkvæði og sjálfstæði í starfi.
• Íslenskukunnátta.
• Hreint sakavottorð.
• Ökuréttindi eru æskileg.

Umsóknarfrestur er til 15. ágúst nk.

Fólk af báðum kynjum er hvatt til að sækja um. Launakjör eru samkvæmt kjarasamningum sveitarfélaga við viðkomandi stéttarfélög. Nánari upplýsingar um störfin veita Aðalheiður Árnadóttir, í síma 470 0700 og á netfangi [email protected] og Guðbjörg Gunnarsdóttir, í síma 470 0700 og á netfanginu [email protected]. Umsóknareyðublöð má fá á heimasíðu Fljótsdalshéraðs. Vinnustaðir Fljótsdalshéraðs eru reyklausir og fjölskylduvænir.