Starfsfólk í sumarfrístund í Múlaþingi
Múlaþing leitar að sjálfstæðum, hressum, ábyrgðarfullum og jávkæðum einstaklingum yfir 18 ára aldri til að starfa í sumarfrístund í Múlaþingi sumarið 2022.
Er um að ræða störf á Djúpavogi, Egilsstöðum og Seyðisfirði.
Reynsla af störfum með börnum og unglingum er mikill kostur og góð hæfni í mannlegum samskiptum nauðsynleg.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Leiðbeina börnum í leik og starfi í sumarfrístund.
- Hjálpa börnum í sumarfrístund við að skipuleggja og framkvæma verkefni við hæfi.
- Aðstoða börn í matar- og kaffitímum.
- Gefa börnum tækifæri til að stunda heilsusamlega hreyfingu og þroskandi leiki jafnt úti sem inni.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Menntun eða reynsla sem nýtist í starfi
- Áhugi á að vinna með börnum
- Frumkvæði og sjálfstæði
- Skipulögð og öguð vinnubrögð
- Metnaður og dugnaður
- Hreint sakavottorð
- Hæfni í mannlegum samskiptum, jákvætt viðmót og framúrskarandi samstarfshæfni.
Allir umsækjendur þurfa að gefa leyfi fyrir að upplýsinga um þá sé aflað úr sakaskrá, sbr. 3.-4. mgr. 10. gr. laga nr. 70/2007 og uppfylla þau skilyrði sem koma fram í 2. mgr. 10. gr. sömu laga.
Öllum umsóknum skal fylgja rökstuðningur fyrir hæfni viðkomandi í starfið.
Vinnustaðir Múlaþings eru tóbakslausir og fjölskylduvænir.
Einstaklingar af öllum kynjum eru hvattir til að sækja um.
Nánari upplýsingar um störfin veitir Bylgja Borgþórsdóttir, í síma 470 0700 og á netfanginu [email protected]
Umsækjendum er bent á að kynna sér fræðslubréf um vinnslu Múlaþings á persónuupplýsingum starfsumsækjenda, sem finna má á heimasíðu sveitarfélagsins www.mulathing.is