Starfsfólk í félagsmiðstöðina á Seyðisfirði

Auglýst er eftir frístundaleiðbeinendum í tímabundna tímavinnu hjá félagsmiðstöðinni á Seyðisfirði.

Viðkomandi starfar með forstöðumanni félagsmiðstöðvarinnar og sinna opnunum og öðrum tilfallandi verkefnum í félagsmiðstöðinni.

Markmið starfsins er að bjóða upp á heildstæða og faglega þjónustu þar sem uppeldisgildi frítímastarfs eru höfð að leiðarljósi. Í því felst að skapa umhverfi og aðstæður þar sem hægt er að þjálfa lykilfærni hjá börnum og unglingum með áherslu á samskiptafærni, félagsfærni, virkni og þátttöku ásamt styrkingu sjálfsmyndar.

Ráðið verður frá og með næstu áramótum og ráðið er út maí. Næsti yfirmaður er forstöðurmaður félagsmiðstöðvarinnar á Seyðisfirði.

Helstu verkefni og ábyrgð
  • Sinnir vöktum í félagsmiðstöðvum og öðru starfi eftir atvikum.
  • Skipuleggur starfið í samráði við forstöðufólk.
  • Sér til þess að húsnæði sé tilbúið til notkunar þegar starf hefst og að frágangur húsnæðis sé viðunandi að vinnudegi loknum.
  • Sækir fræðslu í samráði við annað starfsfólk sviðsins.
  • Sækir viðburði með börnum- og unglingum á vegum félagsmiðstöðvarinnar.
Menntunar- og hæfniskröfur
  • Reynsla af starfi með börnum og ungmennum er mikill kostur sem og þekking á málaflokknum.
  • Umsækjandi þarf að vera orðinn 18 ára gamall og hafa hreint sakavottorð skv. 10. gr. Æskulýðslaga (lög nr. 70/2007).
  • Snyrtimennska, góð samskiptahæfni og rík þjónustulund.
  • Heiðarleiki og stundvísi, auk þess sem starfsmaður þarf að vera umburðalyndur.
  • Er góð fyrirmynd.
Secret Link