STARFSFÓLK Í BÚSETUÞJÓNUSTU – REYÐARFIRÐI

Starfsfólk í búsetuþjónustu

Fjölskyldusvið Fjarðabyggðar óskar eftir starfsfólki í sumarafleysingar og framtíðarstörf í búsetuþjónustu á Reyðarfirði. Um er að ræða sólarhringsþjónustu á heimilum fatlaðs fólks.

Hæfniskröfur:

  • Áhugi á málefnum fatlaðs fólks.
  • Þjónustulund og jákvæðni í starfi.
  • Hæfni í mannlegum samskiptum.
  • Framtakssemi, sjálfstæði og samviskusemi.
  • Mikilvægt er að starfsmenn tali og skilji íslensku.
  • Æskilegt er að starfsmenn séu með bílpróf.

Við bjóðum upp á:

  • Sveigjanlegan vinnutíma.
  • Starfshlutfall eftir samkomulagi.

Umsóknarfrestur er til 15. júní en æskilegt er að starfsmenn geti hafið störf sem allra fyrst.

Nánari upplýsingar veitir forstöðumaður búsetuþjónustu, Anna H. Árnadóttir [email protected] – 470-9000.

Sótt er um á ráðningarvef Fjarðabyggðar með því að smella hér

Secret Link