Starfsfólk í búsetuþjónustu á Reyðarfirði

Fjölskyldusvið Fjarðabyggðar óskar eftir starfsfólki í búsetuþjónustu á Reyðarfirði. Um er að ræða kvöld,- nætur- og helgarvaktir á heimilum fatlaðs fólks.

Hæfniskröfur:

  • Áhugi á málefnum fatlaðs fólks.
  • Þjónustulund og jákvæðni í starfi.
  • Hæfni í mannlegum samskiptum.
  • Framtakssemi, sjálfstæði og samviskusemi.
  • Mikilvægt er að starfsmenn tali og skilji íslensku.
  • Æskilegt er að starfsmenn séu með bílpróf.

Starfslýsing – Starfsmaður á heimili fyrir fatlað fólk II.pdf

Við bjóðum upp á:

  • Sveigjanlegan vinnutíma.
  • Starfshlutfall eftir samkomulagi.

Umsóknarfrestur er til 14. september en æskilegt er að starfsmenn geti hafið störf sem allra fyrst. Sótt er um á ráðningarvef Fjarðabyggðar. Nánari upplýsingar veitir forstöðumaður búsetuþjónustu, Anna H. Árnadóttir á netfanginu [email protected], eða í síma 868-4304.

Sótt er um starfið á ráðningavef Fjarðabyggðar með því að smella hér

Secret Link