Starfsfólk í afgreiðslu á Austurlandi
Samskip leita að öflugum starfsmönnum á starfsstöðvar sínar á Austurlandi. Störfin felast í vörudreifingu, lyftaravinnu ásamt afgreiðslu vöru og þjónustu við viðskiptavini
Helstu verkefni
- Vörudreifing
- Móttaka og afgreiðsla á vörum
- Lyftaravinna
- Önnur tilfallandi störf
Hæfnikröfur
- Bílpróf er skilyrði
- Meiraprófs- og/eða lyftararéttindi er kostur
- Íslensku- og/eða enskukunnátta skilyrði
- Almenn tölvukunnátta er kostur
- Rík þjónustulund og sterk öryggisvitund
- Stundvísi, reglusemi og snyrtimennska
Við hvetjum einstaklinga af öllum kynjum til þess að sækja um. Umsækjendur verða að hafa náð 18 ára aldri. Umsóknarfrestur er til og með 18. janúar n.k. og hægt er að sækja um starfið í gegnum ráðningarvef Samskips: https://jobs.50skills.com/samskip/is/17507
Nánari uppýsingar um starfið veitir Aníta Linda Jónsdóttir verkstjóri svæðisskrifstofu Samskipa á Egilsstöðum, í netfangið [email protected]
Hreint sakavottorð er skilyrði fyrir ráðningu hjá Samskipum