Starfsfólk á íþróttavöllum

Sveitarfélagið Múlaþing auglýsir eftir starfsfólki á íþróttavelli á Egilsstöðum og í Fellabæ sumarið 2022.

Starfsfólk sinnir umhirðu og viðhaldi íþróttavalla, vallarhúsa, áhorfendasvæða og umhverfis þeirra yfir sumarið. Unnið er samkvæmt viðhalds- og umhirðuáætlun fyrir íþróttavelli og vallarhús.

Starfsfólk starfar undir stjórn vallastjóra.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Umhirða íþróttavalla, t.a.m. sláttur, merking valla, umhirða hlaupabrauta o.fl.
  • Þrif á klefum og öðru húsnæði.
  • Önnur tilfallandi verkefni.

 

Menntunar- og hæfniskröfur

  • Bílpróf.
  • Reynsla af sambærilegum störfum æskileg.
  • Heiðarleiki, stundvísi og umburðarlyndi.
  • Hæfni í mannlegum samskiptum, jákvætt viðmót og samskiptahæfni.
  • Frumkvæði, sjálfstæði og skipulagshæfni.
  • Hæfni til að bregðast við óvæntum aðstæðum og vilji til að taka þátt í breytingum.
  • Vinnuvélaréttindi kostur.

 

Allir umsækjendur þurfa að gefa leyfi fyrir að upplýsinga um þá sé aflað úr sakaskrá, sbr. 3.-4. mgr. 10. gr. laga nr. 70/2007 og uppfylla þau skilyrði sem koma fram í 2. mgr. 10. gr. sömu laga.

Umsækjendur þurfa að hafa náð 18 ára aldri.

Öllum umsóknum skal fylgja rökstuðningur fyrir hæfni viðkomandi í starfið.

Vinnustaðir Múlaþings eru tóbakslausir og fjölskylduvænir.

Einstaklingar af öllum kynjum eru hvattir til að sækja um.

Nánari upplýsingar um störfin veitir Guðjón Hilmarsson, í síma 899 1948 og á netfanginu [email protected].

Umsækjendum er bent á að kynna sér fræðslubréf um vinnslu Múlaþings á persónuupplýsingum starfsumsækjenda, sem finna má á heimasíðu sveitarfélagsins www.mulathing.is

Secret Link