STARF VÉLSTJÓRA VIÐ FJARÐABYGGÐARHAFNIR

Framkvæmdasvið Fjarðabyggðar auglýsir laust til umsóknar starf vélstjóra á Fjarðabyggðarhöfnum. Um er að ræða fullt starf auk bakvakta. Starfið felur í sér vélstjórn dráttarbáts Fjarðabyggðarhafna auk annarra starfa í framkvæmda- og þjónustumiðstöð.

Starfið felur í sér hafnarvörslu, vigtun og þjónustu við viðskipavini hafnarinnar, auk annarra hafnarstarfa. Starfið er lifandi og kallar á mikil samskipti við fólk og fyrirtæki. Starfsvettvangur er hafnir innan Fjarðabyggðar.

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Vélstjórnarréttindi er skilyrði.
  • Bílpróf er skilyrði.
  • Hafngæslumannsréttindi í hafnarvernd er kostur.
  • Vigtarréttindi er kostur.
  • Góð íslenskukunnátta.
  • Sjálfstæði, frumkvæði og skipulagshæfni.
  • Hæfni í mannlegum samskiptum.

Launakjör eru samkvæmt kjarasamningum Launanefndar sveitarfélag og viðkomandi stéttarfélags. Starfið hæfir jafnt konum sem körlum og eru konur hvattar til að sækja um.

Umsóknarfrestur er til og með 20. desember. Skírteini til staðfestingar á prófum og réttindum auk sakavottorðs, þarf að fylgja umsókn.

Starfslýsing.

Sótt er um starfið á ráðningarvef sveitarfélagsins.

Nánari upplýsingar veitir Marinó Stefánsson, [email protected] og í síma 897-7139.