Starf stuðningsfulltrúa í Egilsstaðaskóla

Við Egilsstaðaskóla eru laus til umsóknar 70% starf stuðningsfulltrúa.  Viðkomandi þarf að geta hafið störf sem fyrst.

Helstu verkefni og ábyrgð
Felur í sér stuðning við nemendur í kennslustundum.
Hefur umsjón með nemendum í hádegi og frímínútum.
Tekur þátt í þverfaglegu starfi árgangateyma.
Tekur þátt í skólaþróun í samræmi við stefnu skóla og sveitarfélags.
Menntunar- og hæfniskröfur
Stuðningsfulltrúanám eða sambærilegt nám æskilegt.
Góð samskipta- og samstarfshæfni og vera tilbúinn að vinna með öðrum.
Frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð.
Áhugi á að starfa með börnum og á auðvelt með að eiga samskipti við þau.

Launakjör eru samkvæmt kjarasamningum sveitarfélagsins við viðkomandi stéttarfélag.

Einstaklingar af öllum kynjum eru hvött til að sækja um stöðurnar. Þeir sem ráðnir eru til starfa hjá Egilsstaðaskóla þurfa að veita heimild til að leitað sé upplýsinga úr sakaskrá hjá Ríkissaksóknara.

Sótt er um á heimasíðu Múlaþings https://www.mulathing.is/  undir störf í boði.

Nánari upplýsingar veitir Ruth Magnúsdóttir í síma 4700 607 eða á netfanginu [email protected]

Öllum umsóknum skal fylgja yfirlit yfir nám og/eða fyrri störf og rökstuðningur fyrir hæfni viðkomandi í starfið. 

Umsækjendum er bent á að kynna sér fræðslubréf um vinnslu Múlaþings á persónuupplýsingum starfsumsækjenda, sem finna má á heimasíðu sveitarfélagsins www.mulathing.is

Secret Link