egilsstadaskoli

Starf stuðningsfulltrúa

Við Egilsstaðaskóla er laus til umsóknar staða stuðningsfulltrúa frá 5. september 2023. Um er að ræða 70-100% starf.

Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og viðkomandi stéttarfélags.

Nánari upplýsingar veitir Kristín Guðlaug Magnúsdóttir skólastjóri á netfanginu [email protected] eða í síma 470 0605.

Öllum umsóknum skal fylgja yfirlit yfir nám og/eða fyrri störf og rökstuðningur fyrir hæfni viðkomandi í starfið.

Þeir sem ráðnir eru til starfa á Fjölskyldusvið Múlaþings þurfa að veita heimild til að leitaðsé upplýsinga úr sakaskrá hjá Ríkissaksóknara.

Einstaklingar af öllum kynjum eru hvattir til að sækja um.

Umsækjendum er bent á að kynna sér fræðslubréf um vinnslu Múlaþings á persónuupplýsingum starfsumsækjenda, sem finna má á heimasíðu sveitarfélagsins www.mulathing.is

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Felur í sér stuðning við nemendur í kennslustundum
  • Hefur umsjón með nemendum í hádegi og frímínútum
  • Tekur þátt í þverfaglegu starfi árgangateyma
  • Tekur þátt í skólaþróun í samræmi við stefnu skóla og sveitarfélags
  • Starfar í Frístund

Menntunar- og hæfniskröfur

  • Stuðningsfulltrúanám eða sambærilegt nám æskilegt
  • Góð samskipta- og samstarfshæfni og vera tilbúinn að vinna með öðrum
  • Frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð
  • Áhugi á að starfa með börnum og á auðvelt með að eiga samskipti við þau
  • Góð íslenskukunnátta æskileg

Umsóknarfrestur er til og með 4. september 2023 og sótt er um á heimasíðu Múlaþings www.mulathing.is undir „störf í boði“.

 

Secret Link