Starf stuðningsfulltrúa
Við Egilsstaðaskóla eru lausar til umsóknar stöður stuðningsfulltrúa frá 14. ágúst 2023. Um er að ræða 70-100% stöður.
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitarfélaga og ivðkomandi stéttarfélags.
Nánari upplýsingar veitir Kristín Guðlaug Magnúsdóttir skólastjóri á netfanginu [email protected] eða í síma 470 0605.
Öllum umsóknum skal fylgja yfirlit yfir nám og/eða fyrri störf og rökstuðningur fyrir hæfni viðkomandi í starfið.
Þeir sem ráðnir eru til starfa á fjölskyldusvið Múlaþings þurfa að veita heimild til að leitað sé upplýsinga úr sakaskrá hjá Ríkissaksóknara.
Einstaklingar af öllum kynjum eru hvattir til að sækja um.
Umsækjendum er bent á að kynna sér fræðslubréf um vinnslu Múlaþings á persónuupplýsingum starfsumsækjenda, sem finna má á heimasíðu sveitarfélagsins www.mulathing.is
Helstu verkefni og ábyrgð
- Felur í sér stuðning við nemendur í kennslustundum
- Hefur umsjón með nemendum í hádegi og frímínútum
- Tekur þátt í þverfaglegu starfi árgangateyma
- Tekur þátt í skólaþróun í samræmi ivð stefnu skóla og sveitarfélags
- Starfar í frístund
Menntunar- og hæfniskröfur
- Stuðningsfulltrúanám eða sambærilegt nám æskilegt
- Góð samskipta- og samstarfshæfni og vera tilbúinn að vinna með öðrum
- Frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð
- Áhugi á að starfa með börnum og á auðvelt með að eiga samskipti við þau
- Góð íslenskukunnátta æskileg
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningum sveitarfélagsins við viðkomandi stéttarfélag.
Einstaklingar af öllum kynjum eru hvött til að sækja um stöðurnar. Þeir sem ráðnir eru til starfa hjá Egilsstaðaskóla þurfa að veita heimild til að leitað sé upplýsinga úr sakaskrá hjá Ríkissaksóknara.
Sótt er um á heimasíðu Múlaþings www.mulathing.is undir „störf í boði“ og er umsóknarfrestur til og með 17. Ágúst.