Starf skólaliða við Egilsstaðaskóla
Við Egilsstaðaskóla eru laus til umsóknar starf skólaliða í afleysingar til 8. Júní 2023. Um er ða ræða 50% starf. Viðkomandi þarf að geta hafið störf sem allra fyrst eftir ða umsóknarfresti líkur.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Gæsla og umsjón með nemendum í frímínútum og matsal
- Ræsting á skólahúsnæði
Menntunar- og hæfniskröfur
- Góð samskipta- og samstarfshæfni og vera tilbúinn að vinna með öðrum
- Frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð
- Áhugi á að starfa með börnum og á auðvelt með að eia samskipti við þau
- Jákvæðni í starfi og lausnarmiðað viðhorf
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningum sveitarfélagsins við viðkomandi stéttarfélag.
Einstaklingar af öllum kynjum eru hövtt til að sækja um stöðurnar. Þeir sem ráðnir eru til starfa hjá Egilsstaðaksóla þurfa að veita heimild ti lað leitað sé upplýsinga úr sakaskrá hjá Ríkissaksóknara.
Nánari upplýsingar veitir Kristín Guðlaug Magnúsdóttir, skólastjóri í síma 470 0607 eða á netfanginu [email protected]
Öllum umsóknum skal fylgja yfirlit yfir nám og/eða fyrri störf og rökstuðningur fyrir hæfni viðkomandi í starfið.
Umsækjendum er bent á að kynna sér fræðslubréf um vinnslu Múlaþings á persónuupplýsingum starfsumsækjenda, sem finna má á heimasíðu sveitarfélagins www.mulathing.is
Umsóknarfrestur er til og með 3. janúar 2023 og hægt er að sækja um starfið á heimasíðu sveitarfélagsins www.mulathing.is undir „laus störf“