Starf skólaliða
Við Egilsstaðaskóla eru laus til umsóknar starf skólalið. Um er að ræða um 80% starf. Viðkomandi þarf að geta hafið störf sem allra fyrst eftir að umsóknarfresti líkur.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Gæsla og umsjón með nemendum í frímínútum og matsal
- Ræsting á skólahúsnæði
Menntunar- og hæfniskröfur
- Góð samskipta- og samstarfshæfni og vera tilbúinn að vinna með öðrum
- Frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð
- Áhugi á að starfa með börnum og á auðvelt með að eiga samskipti við þau
- Jákvæðni í starfi og lausnarmiðað viðhorf
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningum sveitarfélagsins við viðkomandi stéttarfélag.
Einstaklingar af öllum kynjum eru hvött til að sækja um stöðurnar. Þeir sem ráðnir er util starfa hjá Egilsstaðaskóla þurfa að veita heimild til að leitað sé upplýsinga úr sakaskrá hjá Ríkissaksóknara.
Nánari upplýsingar veitir Kristín Guðlaug Magnúsdóttir, skólastjóri í síma 470 0607 eða á netfanginu [email protected]
Öllum umsóknum skal fylgja yfirlit yfir nám og/eða fyrri störf og rökstuðningur fyrir hæfni viðkomandi í starfið.
Umsækjendum er bent á að kynna sér fræðslubréf um vinnslu Múlaþings á persónuupplýsingum starfsumsækjenda, sem finna má á heimasíðu sveitarfélagsins www.mulathing.is
Umsóknarfrestur er til 18. ágúst 2022 og sótt er um starfið í gegnum ráðningarvef Alfreðs: Starf skólaliða | Egilsstaðaskóli | Hlutastarf Egilsstaðir | Alfreð (alfred.is)