Starf rekstrarstjóra við skíðasvæðið í Stafdal

Laust er til umsóknar starf rekstrarstjóra við skíðasvæðið í Stafdal. Starfið felst í daglegri umsjón
með rekstri skíðasvæðisins sem og starfsmannahaldi svæðsins. Rekstur svæðisins er á hendi
Skíðafélagsins í Stafdal (SKIS).

Rekstrarstjóri sér m.a. um:
• Opnun svæðisins og daglegan rekstur þess út veturinn sem og frágang á svæðinu.
• Viðhald tækja og búnaðar.
• Ráðningu annarra starfsmanna ásamt verkstýringu þeirra.
• Troðslu á skíðasvæðinu, lyftuvörslu og önnur störf sem þarf að sinna.
• Daglegt upplýsingaflæði í gegnum netmiðla og fjölmiðla.

Hæfniskröfur:
• Færni í mannlegum samskiptum, frumkvæði og metnaður.
• Reynsla af vinnu með vinnuvélar skilyrði, auk reynslu af viðgerðum og viðhaldi tækja
og búnaðar
• Réttindi til stjórnunar troðara er skilyrði.
• Æskilegt að viðkomandi hafi reynslu af stjórnun.
• Kunnátta á skíðum og í skyndihjálp er kostur.

Farið verður með allar umsóknir sem trúnaðarmál.
Upplýsingar veitir Hugrún í síma 665 6527 eða á netfangið [email protected].
Umsóknarfrestur er til og með 26. nóvember 2018

Secret Link