Starf forstjóra Heilbrigðisstofnunar Austurlands

Heilbrigðisráðuneytið auglýsir laust til umsóknar embætti forstjóra Heilbrigðisstofnunar Austurlands (HSA). Heilbrigðisráðherra skipar í stöðuna til 5 ára frá 1. september 2026.

Helstu verkefni og ábyrgð

Heilbrigðisstofnun Austurlands starfar samkvæmt lögum um heilbrigðisþjónustu nr. 40/2007, með síðari breytingum. Heilbrigðisstofnunin veitir almenna heilbrigðisþjónustu og rekur 13 starfsstöðvar, þar á meðal umdæmissjúkrahús Austurlands, heilsugæslustöðvar og sel og hjúkrunarheimili. Heilbrigðisumdæmi Austurlands þjónar sveitarfélögunum Vopnafjarðarhreppi, Fljótsdalshreppi, Múlaþingi og Fjarðabyggð.

Þá annast stofnunin starfsnám í heilbrigðisgreinum og starfar í tengslum við háskóla á sviði fræðslumála heilbrigðisstétta og rannsókna í heilbrigðisvísindum.

Forstjóri ber ábyrgð á að Heilbrigðisstofnun Austurlands starfi í samræmi við lög, stjórnvaldsfyrirmæli og erindisbréf sem ráðherra setur honum. Forstjóri ber ábyrgð á starfsemi og þjónustu stofnunarinnar, að rekstrarútgjöld og rekstrarafkoma sé í samræmi við lög um opinber fjármál nr. 123/2015 og að fjármunir séu nýttir á árangursríkan hátt.

Menntunar- og hæfniskröfur

Lögum samkvæmt skal forstjóri hafa háskólamenntun og/eða reynslu af rekstri og stjórnun sem nýtist í starfi. Hæfnikröfur eru eftirfarandi:

  • Háskólamenntun á framhaldsstigi sem nýtist í starfi er skilyrði.
  • Hæfni í mannlegum samskiptum ásamt leiðtogahæfileikum er skilyrði.
  • Þekking og reynsla af stjórnun á rekstri í heilbrigðisþjónustu er æskileg.
  • Þekking og reynsla af áætlunargerð og fjármálum hins opinbera er æskileg.
  • Þekking og reynsla á sviði opinberrar stjórnsýslu æskileg.
  • Farsæl reynsla af stjórnun mannauðsmála.
  • Reynsla af stefnumótun í heilbrigðisþjónustu.
  • Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum.
  • Skýr framtíðarsýn fyrir starfsemi sjúkrahússins og heilbrigðiskerfið.
  • Gott vald á íslensku og færni til að tjá sig í ræðu og riti.