Starf á Egilsstöðum

Við leitum að kraftmiklum ráðgjafa

Við leitum að áhugasömum einstaklingi í tímabundið starf ráðgjafa einstaklinga. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf í maí og í um það bil 12 mánuði.

Hæfniskröfur

  • Þjónustulund
  • Frumkvæði
  • Nákvæmni og talnaskilningur
  • Samstarfshæfni
  • Góð tölvukunnátta

Við bjóðum

  • Gott og sveigjanlegt vinnuumhverfi
  • Fjölbreytt verkefni
  • Samkeppnishæf laun
  • Tækifæri til að vaxa og þróast

Hjá Íslandsbanka starfa um 700 manns. Við vinnum saman af eldmóði að lausnum fyrir viðskitpavini með fagmennsku að leiðarljósi.

Nánari upplýsingar veitir Brynjar Árnason, útibússtjóri [email protected] s. 440 3669.

Umsóknarfrestur er til 25. mars 2023 og skulu umsóknir sendar í gegnum ráðningarsíðu bankans www.islandsbanki.is/atvinna

 

Secret Link