STAÐA STUÐNINGSFULLTRÚA VIÐ GRUNNSKÓLA REYÐARFJARÐAR ER LAUS TIL UMSÓKNAR.

Um er að ræða 100% starf sem felur í sér vinnu með nemendum á miðstigi og  í frístund skólans. Starfsmaðurinn starfar undir stjórn forstöðumanns Skólasels og deildarstjóra sérkennslu í samvinnu við bekkjarkennara hverju sinni. Starfstími er frá kl. 8:00 – 16:00.

Um er að ræða stuðning við börn með ólíkar námsþarfir í samstarfi við kennara.

Einnig að styðja nemendur á sviði tómstunda- og frístundaiðkunar.

Starfsmaður verður hluti af teymi starfsmanna á miðstsigi og teymi sem vinnur saman að því að gera frístund að skemmtilegri og þroskandi upplifun.

Helstu verkefni:

  • Leiðbeina og styðja börn við nám.
  • Leiðbeina börnum í leik og starfi í frístund.
  • Gefa börnum tækifæri til að stunda heilsusamlega hreyfingu og þroskandi leiki jafnt úti sem inni.

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Góð menntun sem nýtist í starfi er æskileg.
  • Góð tök á íslensku máli, töluðu og skrifuðu.
  • Hæfni í mannlegum samskiptum, jákvætt viðmót og framúrskarandi samstarfshæfni.
  • Frumkvæði, skipulagshæfni og samviskusemi.
  • Ábyrgð og stundvísi.
  • Áhugi á að taka þátt í teymisstarfi og umbótaverkefnum.
  • Reynsla og þekking á málefnum fatlaðs fólks er kostur.

Stuðningsfulltrúi I.pdf

Aðstoðarmaður í Skólaseli.pdf

Leitað er að starfsmanni sem er reiðubúinn til að ganga til liðs við samhentan hóp starfsfólks þar sem áherslan er lögð á samstarf og samvinnu. Í Skólaseli eru um 50 börn þar sem áhersla er lögð á stuðning við börn á sviði tómstunda- og frístundaiðkunar í leik og starfi.200 nemendur stunda nám við skólann sem staðsettur er í glæsilegu húsnæði með frábærri aðstöðu.

Laun eru samkvæmt kjarasamningum Sambands íslenskra sveitarfélaga og hlutaðeigandi stéttarfélags.

Umsóknarfrestur er til og með 21. desember 2021 og þarf viðkomandi að geta hafið störf 3. janúar.

Umsækjendur af öllum kynjum eru hvattir til að sækja um störfin.

Nánari upplýsingar veita Ásta Ásgeirsdóttir skólastjóri, [email protected] og Guðlaug Árnadóttir aðstoðarskólastjóri, [email protected]  í síma 470-9200.

Sótt er um starfið á ráðningavef Fjarðabyggðar með því að smella hér.

Secret Link