STAÐA SKÓLARITARA VIÐ GRUNNSKÓLA REYÐARFJARÐAR

Staða skólaritara við Grunnskóla Reyðarfjarðar laus til umsóknar

Skólaritari veitir skrifstofu skólans forstöðu. Skrifstofan þjónar öllum starfsmönnum og nemendum skólans og er tengill milli skóla og heimilis. Um er að ræða 65% fjölbreytt starf en nánari lýsingu á starfinu má sjá í meðfylgjandi starfslýsingu.

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Góð menntun sem nýtist í starfi er æskileg.
  • Góð færni í tölvunotkun.
  • Góð tök á íslensku máli, töluðu og skrifuðu.
  • Frumkvæði í starfi og faglegur metnaður.
  • Sjálfstæði og frumkvæði í vinnubrögðum.
  • Jákvæðni og sveigjanleiki í samskiptum.
  • Góðir skipulagshæfileikar.
  • Ábyrgð og stundvísi.

Í skólanum eru um 200 börn í 1. – 10. bekk. Kennt er í anda Byrjendalæsis og Orði af orði og áhersla lögð á fjölbreytta kennsluhætti.  Leitað er að starfsmanni sem eru reiðubúinn til að ganga til liðs við samhentan hóp starfsfólks þar sem áherslan er lögð á samstarf og samvinnu.

Skólastarf Grunnskóla Reyðarfjarðar miðast að því að efla hvern einstakling í námi og starfi með fjölbreyttum kennsluaðferðum með áherslu á list- og verkgreinar.

Reyðarfjörður er í hjarta Fjarðabyggðar þar sem góðar samgöngur liggja til allra átta. Stutt er í ósnortna náttúru og fjölbreytta afþreyingarmöguleika.

Laun eru samkvæmt kjarasamningum Sambands íslenskra sveitarfélaga og hlutaðeigandi stéttarfélags.

Umsóknarfrestur er til og með 3. júní 2022  en viðkomandi þarf að geta hafið störf í ágúst.

Umsækjendur af báðum kynjum eru hvattir til að sækja um störfin.

Nánari upplýsingar veitir Ásta Ásgeirsdóttir skólastjóri, [email protected] og Guðlaug Árnadóttir aðstoðarskólastjóri, [email protected] og í síma 470 9200.

Sótt er um starfið á ráðningavef Fjarðabyggðar með því að smella hér.