Spennandi tækifæri á Austurlandi – Skrifstofa

Tanni Travel er rótgróið alhliða ferðaþjónustufyrirtæki fyrir innlenda og erlenda ferðamenn, staðsett á Austurlandi.

Fyrirtækið á 16 hópferðabíla af öllum stærðum og gerðum.

Við erum samhentur hópur starfsmanna með mikinn metnað og viljum bæta við okkur kraftmiklum, hugmyndaríkum, jákvæðum og samviskusömum liðsmönnum.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Sala, þjónusta og móttaka viðskikptavina
  • Bókanir, úrvinnsla og umsjón með ferðum
  • Samskipti við samstarfsaðila
  • Þróun ferða, ferla og verklags
  • Tilboðs- og áætlanagerð
  • Annað tilfallandi

Við leitum að starfsmanni sem býr yfir:

  • Starfsreynslu sem nýtist í starfi
  • Góðri íslensku- og enskukunnáttu í bæði rituðu og töluðu máli
  • Góðri tölvukunnáttu, Word og Excel skilyrði
  • Þekkingu á bókhaldi
  • Sjálfstæðum og öguðum vinnubrögðum
  • Góðum samskipta- og skipulagshæfileikum
  • Getur unnið undir álagi og í skorpum

Kostur, en ekki nauðsynlegt:

  • Menntun sem nýtist í starfi
  • Reynsla af stjórnun
  • Þekking á Austurlandi

Um er að ræða 100% starf.

Fólk af öllum kynjum er hvatt til að sækja um.

Umsóknarfrestur er til 6. desember 2022.

Allar nánari upplýsingar veitir framkvæmdastjóri, Díana Mjöll, á netfanginu [email protected]

Áhugasamir sendi inn kynningarbréf ásamt ferilskrá á sama netfang