Spennandi sumarstörf á Reyðarfirði

Spennandi sumarstörf hjá traustu fyrirtæki
Alcoa hefur verið leiðandi í áliðnaði frá því að fyrirtækið var stofnað árið
1888 og álver Fjarðaáls við Reyðarfjörð er meðal þeirra fullkomnustu í
heiminum. Öryggi er í fyrirrúmi og mikið er lagt upp úr góðum aðbúnaði
starfsmanna, öflugu félagsstarfi og stuðningi við samfélagið.

Alcoa Fjarðaál leitar að góðu fólki til sumarafleysinga í álverinu við
Reyðarörð. Um er að ræða framleiðslustörf á þrískiptum átta tíma vöktum
í kerskála, skautsmiðju og steypuskála Fjarðaáls. Sumarstarfsmenn þurfa að
geta unnið samfellt í að minnsta kosti tvo og hálfan mánuð. Umsækjendur
verða að hafa náð 18 ára aldri, hafa gild ökuréttindi og hreint sakavottorð.

Almennar hæfniskröfur
Sterk öryggisvitund og árvekni
Dugnaður og vilji til að takast á við krefjandi verkefni
Heiðarleiki og stundvísi
Lipurð í samskiptum og vilji til að vinna í teymi
Umsóknarfrestur er til og með miðvikudeginum 20. febrúar. Áhugasamir eru
hvattir til að sækja um sem fyrst. Umsóknir eru trúnaðarmál og verður þeim
öllum svarað.

Við hvetjum konur jafnt sem karla til að sækja um störfin. Frekari
upplýsingar veitir mannauðsteymi Fjarðaáls í síma 470 7700 eða
í gegnum netfangið [email protected]. Hægt er að sækja um
sumarstarf hjá Fjarðaáli á www.alcoa.is.