Spennandi sumarstörf á fjölskyldusviði Fjarðabyggðar
Spennandi sumarstörf á fjölskyldusviði Fjarðabyggðar
Fjölskyldusvið Fjarðabyggðar óskar eftir að ráða sumarstarfsfólk í eftirfarandi störf:
Sumarstarfsmaður í Breiðabliki
Laus er til umsóknar staða sumarstarfsmanns við afleysingar í þjónustuíbúðum
aldraðra í Neskaupstað. Um 100% starf er að ræða.
Í starfinu felst meðal annars:
• Umsjón með hádegismat sem sendur er frá eldhúsi HSA
• Innlit til íbúa eftir þörfum
• Félagsstarf með íbúum
• Kaffisala
• Létt leikfimi
• Heimaþjónusta við íbúa
Laun eru samkvæmt samningum launanefndar sveitafélaga og viðkomandi
stéttarfélags.
Sumarstarfsmaður félagslegrar heimaþjónustu
Laus er til umsóknar staða sumarstarfsmanns við afleysingar í afleysingum í
félagslegri heimaþjónustu II. Starfshlutfall er eftir samkomulagi.
Í starfinu felst meðal annars að:
• Veita félagslegan stuðning og persónulega aðstoð við notanda.
• Veita notanda aðstoð við öll almenn heimilisstörf sem hann getur ekki
annast sjálfur
• Fara með notanda í innkaupaferðir, í banka eða á álíka staði
• Annað sem til fellur til þess að auðvelda notendum eðlilegt heimilislíf
Laun eru samkvæmt samningum launanefndar sveitafélaga og viðkomandi
stéttarfélags.
Frekari upplýsingar um störfin gefur Guðrún Lilja Magnúsdóttir í síma 861 3074
og í gegnum netfangið [email protected].
Umsóknarfrestur er til og með 15. maí 2019.
Sótt er um störfin á ráðningavef Fjarðabyggðar – starf.fjardabyggd.is