Söluráðgjafi á Egilsstöðum
Verslun Tölvulistans og Heimilistækja á Egilsstöðum óskar eftir að ráða söluráðgjafa í verslun.
Starfið felst í sölu og þjónustu við viðskiptavini verslunarinnar þar sem rík áhersla er á ráðgefandi sölu og góða upplýsingamiðlun ásamt framúrskarandi þjónustu. Vinnutími er virka daga frá 10-18 og annan hvern laugardag. Um framtíðarstarf er að ræða og þarf viðkomandi að geta hafið störf fljótelga.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Almenn afgreiðslu- og sölustörf ásamt framúrskarandi þjónustu við viðskiptavini verslunarinnar.
- Ráðgjöf til viðskiptavina um val á vörum verslunarinnar.
- Áfyllingar og framstillingar.
- Móttaka og afhending á vörum.
- Þrif í verslun.
- Önnur tilfallandi verkefni.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Reynsla af sölu- og þjónustörfum mikill kostur.
- Þekking og áhugi á tölvum, raf- og heimilistækjum.
- Framúrskarandi þjónustulund og samskiptahæfni.
- Heiðarleiki, stundvísi og metnaður.
- Mjög góð íslensku og ensku kunnátta.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Óðinn Snær í versluninni og í gegnum netfangið [email protected].