Slökkviliðsstjóri Brunavarna á Austurlandi

Laust er til umsóknar starf slökkviliðsstjóra hjá Brunavörnum á Austurlandi.

Brunavarnir á Austurlandi er rekstrarsamlag, með lögheimili og starfsstöð slökkviliðsstjóra
á Fljótsdalshéraði, sem annast brunavarnir í sveitarfélögunum Borgarfjarðarhreppi,
Djúpavogshreppi, Fljótsdalshéraði, Fljótsdalshreppi, Seyðisfjarðarkaupstað og
Vopnafjarðarhreppi.

Starfssvið:
• Framkvæmdastjóri Brunavarna á Austurlandi
• Yfirumsjón og ábyrgð á rekstri og stjórnun slökkviliða í aðildarsveitarfélögunum
• Ráðning slökkviliðsmanna í samráði við varðstjóra á hverjum stað
• Ábyrgð á faglegri starfsemi slökkviliða í aðildarsveitarfélögunum
• Úttektir, eldvarnareftirlit og stjórnun aðgerða
• Eftirlit með viðhaldi og fjárfestingum og tillögugerð þar um til viðkomandi sveitarstjórna
• Umsjón með fjárreiðum, stefnumótun og áætlanagerð í samráði við stjórn
• Samskipti við hagsmunaaðila
• Önnur þau verkefni er stjórn felur viðkomandi í samræmi við starfslýsingu

Menntunar- og hæfniskröfur:
• Umsækjandi skal hafa löggildingu sem slökkviliðsmaður skv. 17. gr. laga nr. 75/2000 og/eða
hafa starfað að lágmarki í eitt ár í slökkviliði sem löggiltur slökkviliðsmaður eða hafa
háskólamenntun með sérmenntun í brunamálum
• Reynsla og/eða haldgóð þekking á stjórnun slökkviliðs æskileg
• Leiðtogahæfni
• Sjálfstæði og skipulögð vinnubrögð
• Góð almenn tölvukunnátta og færni til að tjá sig í ræðu og riti
• Þjónustulund, jákvæðni og hæfni í mannlegum samskiptum
Um fullt starf er að ræða en laun og starfskjör eru samkvæmt gildandi kjarasamningi
Sambands íslenskra sveitarfélaga og Landssambands slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna.

Æskilegt er að viðkomandi geti komið til starfa eigi síðar en í byrjun júlí 2019.
Allar frekari upplýsingar veita Björn Ingimarsson, formaður stjórnar Brunavarna á Austurlandi,
[email protected] og/eða Baldur Pálsson, slökkviliðsstjóri Brunavarna á Austurlandi,
[email protected].

Umsóknarfrestur er til og með 25. febrúar 2019.
Umsóknir berist á skrifstofu Fljótsdalshéraðs, Lyngási 12, 700 Egilsstaðir merkt
SLÖKKVILIÐSSTJÓRI BRUNAVARNA Á AUSTURLANDI eða á netfangið
[email protected].