Skólameistari Verkmenntaskóla Austurlands
Embætti skólameistara Verkmenntaskóla Austurlands er laus til umsóknar.
Verkmenntaskóli Austurlands í Neskaupstað er áfangaskóli sem býður upp á verk- og bóknám, bæði styttri brautir og brautir til starfsréttinda og stúdentsprófs. Skólinn er eini framhaldsskólinn á austanverðu landinu sem gefur nemendum kost á að leggja stund á nám á fjölbreyttum starfsnámsbrautum auk bóknámsbrauta. Starfsmenn skólans eru um 35 talsins og fjöldi nemenda er um 250, þar af 150 í dagskóla og 100 í fjarnami. Verkmenntaskóli Austurlands var stofnaður árið 1986.
Helstu verkefni og ábyrgð
Skólameistari veitir skólanum forstöðu, stjórnar daglegum rekstri og starfi skólans og gætir þess að skólastarfið sé í samræmi við lög, reglugerðir, aðalnámskrá og önnur gildandi fyrirmæli á hverjum tíma. Þá ber skólameistari ábyrgð á gerð fjárhagsáætlunar og að henni sé fylgt auk þess að hafa frumkvæði að gerð skólanámskrár og umbótastarfi innan skólans sbr. 2.mgr. 6.gr laga um framhaldsskóla nr. 92/2008. Að auki gegnir skólameistari mikilvægu hlutverki í mótun skólastarfs á grundvelli laga og aðalnámskrár framhaldsskóla og er mikilvægt að umsækjendur hafi skýra framtíðarsýn hvað þetta varðar.
Menntunar- og hæfniskröfur
- Starfsheitið kennari ásamt viðbótarmenntun í stjórnun eða kennslureynslu á framhaldsskólastigi skilyrði
- Umfangsmikil stjórnunarreynsla og leiðtogahæfni
- Þekking á fjármálum, rekstri og áætlanagerð
- Reynsla af mannauðsmálum
- Góð samskiptahæfni og færni í að skapa liðsheild á vinnustað
- Reynsla af verkefnastjórnun og stefnumótunarvinnu
- Þekking og reynsla af stjórnsýslu
- Skýr framtíðarsýn og hæfileiki til nýsköpunar
Mennta- og barnamálaráðherra skipar skólameistara til fimm ára í senn að fenginni umsögn hlutaðeigandi skólanefndar skv. 6.gr. laga um framhaldsskóla, nr. 92/2008, sbr. lög um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins, nr. 70/1996, með síðari breytingum.
Um ráðningu og launakjör skólameistara fer eftir 39.gr a í lögum nr. 70/1996 um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins og 2.mgr. 12.gr. laga nr. 95/2019 um menntun, hæfni og ráðningu kennara og skólastjórnenda við leikskóla, grunnskóla og framhaldsskóla.
Með umsókn skal fylgja:
- Ítarleg starfsferilskrá með upplýsingum um núverandi starf umsækjanda ásamt ítarlegum upplýsingum um menntun og fyrri störf
- Kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og hvernig umsækjandi uppfyllir hæfniskröfur samkvæmt starfsauglýsingu
- Greinargerð um fratíðarsýn fyrir Verkmenntaskóla Austurlands út frá faglegum og rekstarlegum áherslum í skólastarfi
Við skipun í embætti hjá mennta- og barnamálaráðuneyti er tekið mið af jafnréttisáætlun ráðuneytisins.
Athygi er vakin á því að samkvæmt 7.gr. upplýsingalaga nr. 140/2012 er ráðuneytinu skylt að veita upplýingar um nöfn og starfsheiti umsækjenda þegar umsóknarfrestur er liðinn.
Nánari upplýsingar veitir Svava Þorsteinsdóttir, mannauðsstjóri í mennta- og barnamálaráðuneyti: [email protected]
Umsóknarfrestur er til og með 15. september 2022 og sótt er um starfið í gegnum starfatorg Sjórnarráðs íslands: https://www.stjornarradid.is/efst-a-baugi/laus-storf-a-starfatorgi/auglysing/?id=29940