Skipulagsfulltrúi hjá Múlaþingi
Skipulagsfulltrúi á umhverfis- og framkvæmdasviði Múlaþings
Um er að ræða fjölbreytt og áhugavert 100% framtíðarstarf í lifandi umhverfi.
Múlaþing mun á næstu misserum hefjast vinna við nýtt aðalskipulag sem verður mjög áhugaverð og skapandi vinna. Á umhverfis- og framkvæmdasviði Múlaþings starfar öflugur hópur sem samanstendur af vel menntuðum og kraftmiklum einstaklingum.
Næsti yfirmaður er framkvæmda- og umhverfismálastjóri.
Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst, eða eftir samkomulagi.
Starfskraftur er með fasta starfsstöð á einni af fjórum skrifstoum Múlaþing; Egilssötðum, Borgarfirði eystri, Djúpavogi eða Seyðisfirði.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Umsjón skipulagsmála í sveitarfélaginu
- Umsjón framkvæmdarleyfa og gerð umsagna um skipulags- og byggingaerindi
- Umsjón með vinnu við gerð aðalskipulags sameinaðrs sveitafélags
- Umsjón með grenndarkynningu deiliskipulagsbreytinga og byggingaleyfa
- Auglýsir skipulagsáætlanir lögum samkvæmt
- Lögformleg afgreiðsla erinda og eftirfylgni mála
- Upplýsingagjöf og samskipti við íbúa, kjörna fulltrúa og aðra hagsmunaaðila
- Önnur verkefni sem viðkomanda er falið af framkvæmda- og umhverfismálastjóra
Menntunar- og hæfniskröfur
- Umsækjandi skal uppfylla menntunar- og hæfniskröfur samkvmt 7. Grein skipulagslaga nr. 123/2010 og 2.5. kafla skipulagsreglugerðar nr. 90/2013
- Reynsla af starfi tengdu skipulagsmálum er skilyrði
- Þekking af opinberri stjórnsýslu æskileg
- Mikil samskipta- og samstarfshæfni
- Nákvæmni og hæfni í framsetningu efnis
- Góð almenn tölvukunnátta
- Frumkvæði og öguð vinnubrögð
- Góð íslenskukunnátta í máli og ritun
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningum sveitarfélagsins við viðkomandi stéttarfélag.
Öllum umsóknum skal fylgja yfirlit yfir nám og/eða fyrri störf og rökstuðningur fyrir hæfni viðkomandi í starfið.
Einstaklingar af öllum kynjum eru hvött til að sækja um stöðuna.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Hugrún Hjálmarsdóttir, framkvæmda- og umhverfismálastjóri [email protected]
Umsækjendum er bent á að kynna sér fræðslubréf um vinnslu Múlaþings á persónuupplýsingum starfsumsækjenda, sem finna má á heimasíðu sveitarfélagsins www.mulathing.is
Umsóknarfrestur er til og með 30. október 2022 og hægt er að sækja um starfið í gegnum heimasíðu sveitarfélagsins www.mulathing.is undir „störf í boði“