SKIPSTJÓRI FJARÐABYGGÐARHAFNA

Þjónustumiðstöð Fjarðabyggðar auglýsir laust til umsóknar starf skipstjóra hjá Fjarðabyggðarhöfnum.

Starfið felur í sér skipstjórn á dráttarbát Fjarðabyggðarhafna og ábyrgð á að dráttarbáturinn sé ávallt tilbúinn til notkunar þegar þörf krefur auk afleysingar í hafnsögu. Skipstjóri sinnir auk þess ýmsum störfum og verkefnum hjá þjónustumiðstöð.

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Skipstjórnarréttindi (2. Stig).
  • Góð ensku kunnátta
  • Hafngæslumannsréttindi í hafnarvernd er kostur.
  • Vigtarréttindi er kostur.
  • Bílpróf.
  • Góð íslensku kunnátta.
  • Sjálfstæði, frumkvæði og skipulagshæfni.
  • Hæfni í mannlegum samskiptum.

Launakjör eru samkvæmt kjarasamningum Launanefndar sveitarfélag og viðkomandi stéttarfélags. Starfið hæfir jafnt konum sem körlum og eru konur hvattar til að sækja um.

starfslýsing

Umsóknarfrestur er til og með 27. nóvember 2022 Skírteini til staðfestingar prófum og réttindum, auk sakavottorðs skal fylgja umsókn.

Nánari upplýsingar veitir Marinó Stefánsson, [email protected] eða í síma 470-9019

Sótt er um starfið hér