SKIPSTJÓRI FJARÐABYGGÐARHAFNA

Framkvæmdarsvið Fjarðabyggðar auglýsir laust til umsóknar starf skipstjóra hjá Fjarðabyggðarhöfnum. Starfið felur í sér skipstjórn á dráttarbát Fjarðabyggðarhafna og ábyrgð á að dráttarbáturinn sé ávallt tilbúinn til notkunar þegar þörf krefur auk afleysingar í hafnsögu. Skipstjóri sinnir auk þess ýmsum störfum og verkefnum hjá þjónustumiðstöð.

Menntunar- og hæfniskröfur:

  • Skipstjórnarréttindi (2. Stig).
  • Góð enskukunnátta
  • Hafngæslumannsréttindi í hafnarvernd er kostur.
  • Vigtarréttindi er kostur.
  • Bílpróf.
  • Góð íslensku kunnátta.
  • Sjálfstæði, frumkvæði og skipulagshæfni.
  • Hæfni í mannlegum samskiptum.

Launakjör eru samkvæmt kjarasamningum Launanefndar sveitarfélag og viðkomandi stéttarfélags.

Allir einstaklingar, óháð kyni, eru hvattir til að sækja um starfið.

Skipstjóri með verkstjórn starfslýsing

Umsóknarfrestur er til og með 29. janúar 2023. Skírteini til staðfestingar prófum og réttindum, auk sakavottorðs skal fylgja umsókn.

Nánari upplýsingar veitir Marinó Stefánsson, [email protected] eða í síma 470-9019

Sótt er um starfið inná starfasíðu Fjarðabyggðar