Skapandi sumarstörf á Fljótsdalshéraði og í Fjarðabyggð
Sveitarfélögin Fjarðabyggð og Fljótsdalshérað leita að ungu fólki sem fætt er
á árunum 1995 til 2003 til að taka þátt í skapandi starfi í allt að tíu vikur á
tímabilinu 1. júní til 28. ágúst 2020.
Skapandi sumarstörf eru hugsuð fyrir einstaklinga og hópa sem hafa áhuga á
að efla listsköpun sína og um leið glæða sveitarfélögin lífi með listrænum og
skapandi uppákomum. Starfið hentar fólki með fjölbreyttan áhuga, t.d. á
tónlist, myndlist, sviðslistum og kvikmyndagerð.
Starfið verður mótað að áhugasviði þátttakenda, en verkefnin þurfa að
uppfylla ákveðna skapandi þjónustu við samfélögin, til dæmis að koma fram
við ýmis tilefni í byggðakjörnunum eftir því sem tími og aðstæður leyfa.
Gert er ráð fyrir því þátttakendur starfi að mestu leyti sjálfstætt en fái leiðsögn
frá verkefnisstjóra hópsins, Emelíu Antonsdóttur Crivello.
Umsækjendur skila inn kynningarbréfi um sig og áhugasvið sín. Eins
hugmyndum að verkefnum sem hægt er að vinna. Við val á umsækjendum
verður tekið tillit til reynslu umsækjenda, sýnileika og frumleika hugmynda,
fjölbreytni, kynjahlutfalls umsækjenda, gæði umsókna o.fl.
Allt að 10 ungmenni fá tækifæri til að vinna skapandi sumarstörf í ár og eru
bæði einstaklingar og hópar hvattir til að sækja um.
Athugið að Fjarðabyggð og Fljótsdalshérað standa saman að skapandi sumarstörfum 2020 og því geta hópar verið skipaðir fólki úr báðum sveitarfélögum.
Hægt er að sækja um skapandi sumarstörf á vefsíðum Fjarðabyggðar
og Fljótsdalshéraðs. Umsóknarfrestur er til og með 22. mars 2020.
Nánari upplýsingar veitir Emelía Antonsdóttir Crivello
– [email protected]