Sjúkraflutningamaður á Norðfirði
Slökkvilið Fjarðarbyggðar óskar eftir að ráða sjúkraflutningamann til að starfa á sjúkrabíl í Norðfirði.
Um er að ræða hlutastarf og hentar jafnt konum og körlum.
Ráðningarskilyrði:
- hafa náð 20 ára aldri.
- búseta á Norðfirði.
- vera heilsuhraust(ur) og í góðu líkamlegu formi.
- hafa lokið 60 framhaldsskólaeiningum.
- hafa réttindi til að aka bifreið allt að 5 tonn (heildarþyngd).
- hafa hreint sakavottorð.
- auking ökuréttindi eru æskileg (C1 – 7,5 tonn).
Gert er ráð fyrir að viðkomandi verði sendur á námskeið fyrir sjúkraflutningamenn EMT-B að loknum reynslutíma.
Upplýsingar veitir Guðmundur Helgi Sigfússon í s. 894 5856.