Seyðisfjörður – Bílstjóri í sumarstarf

Pósturinn leitar að starfsmanni í hlutastarf við bréfadreifingu, útkeyrslu sendinga til heimila og fyrirtækja og önnur tilfallandi störf á Seyðisfirði á Austurlandi.

Vinnutími er alla virka daga kl. 8:00-16:00 frá 22. júní fram í miðjan ágúst 2026.

Hæfnikröfur:

  • Bílpróf er skilyrði
  • Íslensku- eða enskukunnátta nauðsynleg
  • Almenn tölvukunnátta
  • Rík þjónustulund og góð samskiptafærni
  • Stundvísi og samviskusemi
  • Jákvæðni og lausnamiðuð hugsun

Umsóknarfrestur er til og með 3. júní. Öllum umsækjendum verður svarað og farið er með umsóknir sem trúnaðarmál.

Nánari upplýsingar um starfið veitir Árni Kristinsson, rekstrarstjóri – í tölvupósti [email protected].

Hjá Póstinum starfar lausnamiðað starfsfólk sem tekur fagnandi á móti síbreytilegum áskorunum þar sem liðsheild, þjálfun og góður starfsandi er í forgrunni. Pósturinn leggur sitt lóð á vogarskálar til að stuðla að sjálfbærni og hefur uppfyllt öll markmið Grænna skrefa. Pósturinn er jafnlaunavottað fyrirtæki.