Sérnámsstaða í heimilislækningum

Heilbrigðisstofnun Austurlands (HSA) auglýsir sérnámsstöðu í heimilislækningum lausa til umsóknar. Starfshlutfall er 100% eða eftir samkomulagi.

HSA hefur langa reynslu af kennslu læknanema, kandídata og sérfræðinema í heimilislækningum. Námið verður byggt á marklýsingu fyrir sérnámslækna í heimilislækningum og auk hefðbundinnar meinafræðilegrar nálgunar verður kynnt hagnýtt gildi heilsufræðilegrar (Salutogenesis) nálgunar. Áhersla verður lögð á þann fjölbreytileika sem héraðslækningar (Rural Medicine) kalla eftir og samtímis að tryggja aðgengi nemans að skipulagðri hópkennslu/námi fyrir sérfræðinema.

Staðan er auglýst til þriggja ára og veitist frá 01.10.2020 eða eftir nánara samkomulagi.

Helstu verkefni og ábyrgð

Almennar lækningar – Heilsuvernd – Vaktþjónusta – Þátttaka í kennslu læknanema og kandídata.

Hæfnikröfur

Almennt lækningaleyfi er skilyrði. Hæfni í mannlegum samskiptum, áreiðanleiki, jákvæðni og sveigjanleiki. Vilji til þverfaglegrar samvinnu (teymisvinnu). Sjálfstæði í starfi, frumkvæði og faglegur metnaður. Íslenskukunnátta áskilin.

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Læknafélag Íslands hafa gert.
Umsóknum skal skilað rafrænt til HSA með því að fylla út umsóknarform á vefsíðu stofnunarinnar; www.hsa.is, undir flipanum Laus störf. Með umsókninni skal fylgja útfyllt umsóknareyðublað frá Landlækni sem fæst á vef Embættis landlæknis; www.landlaeknir.is.
Umsókn eiga að fylgja staðfestar upplýsingar um menntun, fyrri störf og starfsleyfi og ef við á um rannsóknir og greinaskrif.
Öllum umsóknum verður svarað. Tekið er mið af jafnréttisstefnu HSA við ráðningar.

Tóbaksnotkun/Vape er ekki heimil á vinnutíma innan HSA.

HSA starfar á þremur fagsviðum; heilsugæslu-, hjúkrunar- og sjúkrasviði. Áhersla er lögð á samvinnu þvert á byggðarlög. Stofnunin þjónar rúmlega 11.000 íbúum frá Djúpavogi til Vopnafjarðar, auk ferðamanna sem sækja Austurland heim. Umdæmissjúkrahús Austurlands er í Neskaupstað. Á þjónustusvæði HSA eru auk þess fimm heilsugæslustöðvar, en alls eru starfsstöðvarnar ellefu talsins.
HSA vill byggja þjónustu sína á mannvirðingu, þekkingu og þverfaglegri samvinnu.

Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 07.09.2020

Nánari upplýsingar veitir

Pétur Heimisson – [email protected] – 470-3052 / 860-6830

Heilbrigðisstofnun Austurlands
Egilsst. Heilsugæsla
Lagarás 17
700 Egilsstaðir

Sækja um starf

Secret Link