Sérkennslustjóri í Hádegishöfða

Sérkennslustjóri óskast í leikskólann Hádegishöfða, um 60% framtíðarstarf er að ræða. Næsti yfir maður er leikskólastjóri. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf eigi síðar en 15. ágúst nk.

Hádegishöfði er tveggja deilda leikskóli í Fellabæ sem starfar í anda Reggio Emilia, áhersla er á umhverfismennt og er Hádegishöfði skóli á grænni grein. Megináherslur í dagulegu starfi eru ða efla sjálfstæði, gleði og sköpun barna sem og virðingu þeirra fyrir sjálfum sér og öðrum.

Í ágúst flytur starfsemi Hádegishöfða í nýtt húsnæði sem nú er í byggingu og verður þar með þriggja deilda leikskóli.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Skipulagning, framkvæmd og endurmat viðbótarkennslu í leikskólanum
  • Frumgreiningar
  • Ráðgjöf til starfsmanna
  • Miðlun upplýsigna til foreldra og starfsmanna leikskóla
  • Umsjón námsgagna
  • Gerð einstaklingsnámskráa
  • Ráðgjöf og samvinna við foreldra
  • Þátttaka í stjórnendateymi leikskólans
  • Sér um samskipti við félagsþjónustu og skólaþjónustu

Menntunar- og hæfniskröfur

  • Leyfisbréf til kennslu
  • Framhaldsmenntun á sviði sérkennslu
  • Jákæðni og lipurð í samskiptum
  • Frumkvæði í starfi og faglegur metnaður
  • Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð
  • Hæfni til að tjá sig í ræðu og riti á íslensku
  • Önnur tungumálakunnátta er kostur

Nánar um Hádegishöfða, www.hadegishofdi.is

Launakjör eru samkvæmt samningum launanefndar sveitarfélaga við viðkomandi stéttarfélag. Þeir sem ráðnir eru til starfa hjá leikskólanum þurfa ða vieta heimild til að leitað sé upplýsinga úr sakaskrá hjá Ríkissakskóknara.

Einstaklingar af öllum kynjum eru hvött til að sækja um stöðuna.

Nánari upplýsingar veitir Guðmunda Vala leikskólastjóri í síma 470 0670 eða á netfanginu [email protected]

Öllum umsóknum skal fylgja yfirlit yfir nám og/eða fyrri störf og rökstuðningur fyirr hæfni viðkomandi í starfið.

Umsækjendum er bent á að kynna sér fræðslubréf um vinnslu Múlaþings á persónuupplýsingum starfsumsækjenda, sem finna má á heimasíðu sveitarfélagsins www.mulathing.is

Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.

Umsóknarfrestur er til og með 25. apríl 2022 og sótt er um starfið í gegnum ráðningarvef Alfreðs: Sérkennslustjóri í Hádegishöfða | Leikskólinn Hádegishöfði Fellabæ | Hlutastarf Egilsstaðir | Alfreð (alfred.is)

Secret Link