Sérkennslustjóra og deildarstjóra við leikskólann Tjarnarskóg
Auglýst eftir sérkennslustjóra og deildarstjóra
í afleysingu á næsta skólaári við leikskólann
Tjarnarskóg
Sérkennslustjóri óskast í afleysingu eitt ár. Um er að ræða 100% starfshlutfall .
Næsti yfirmaður er leikskólastjóri.
Helstu verkefni og ábyrgð:
• Skipulagning, framkvæmd og endurmat sérkennslu í leikskólanum
• Frumgreiningar
• Ráðgjöf til starfsmanna
• Miðlun upplýsinga til foreldra og starfsmanna leikskóla
• Umsjón námsgagna
• Gerð einstaklingsnámskráa
• Ráðgjöf og samvinna við foreldra
• Fundir og viðtöl vegna sérkennslumála
• Þátttaka í stjórnendateymi leikskólans
• Sér um samskipti við félagsþjónustu og skólaskrifstofu
Hæfniskröfur:
• Leyfisbréf til kennslu
• Framhaldsmenntun og reynsla á sviði sérkennslu
• Jákvæðni og lipurð í samskiptum
• Frumkvæði í starfi og faglegur metnaður
• Sjálfstæð og skipulögð vinnubrögð
• Hæfni til að tjá sig í ræðu og riti á íslensku
Deildarstjóri óskast í afleysingu eitt ár. Um er að ræða 100% starfshlutfall.
Næsti yfirmaður er leikskólastjóri.
Menntunar- og hæfniskröfur eru:
• Leyfisbréf til kennslu
• Færni í mannlegum samskiptum
• Frumkvæði í starfi
• Jákvæðni og áhugasemi
• Hæfni og reynsla af verkstjórn eða stjórnun almennt
• Sjálfstæð og öguð vinnubrögð.
• Snyrtimennska og stundvísi.
Nánari starfslýsing um starf deildarstjóra er að finna á heimasíðu ki.is
Launakjör eru samkvæmt samningum launanefndar sveitarfélaga við viðkomandi stéttarfélag.
Nánari upplýsingar veitir leikskólastjóri í síma 470660 eða í tölvupósti.
Umsóknarfrestur er til og með 20. maí 2020. Umsóknir með ferilskrá skulu sendar til
Sigríðar Herdísar leikskólastjóra á netfangið [email protected]
Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin