SÉRKENNARI VIÐ GRUNNSKÓLA FÁSKRÚÐSFJARÐAR
Grunnskóli Fáskrúðsfjarðar auglýsir lausa til umsóknar stöðu sérkennara. Um er að ræða 100% starf.
Menntun og æskileg hæfni:
Kennaramenntun og réttindi til kennslu í grunnskóla skilyrði.
Menntun í sérkennslufræðum æskileg og/eða talsverð reynsla af lestrarkennslu á yngri stigum.
- Ríkir samstarfs- og samskiptahæfileikar
- Sveigjanleiki og jákvætt viðhorf
- Frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð
- Ánægja af starfi með börnum
Helstu verkefni:
- Kemur að skipulagningu kennslu nemenda með sérþarfir.
- Kennir nemendum sem þurfa sérkennslu í bekk eða í sérrými.
- Heldur utan um gerð einstaklingsnámskráa vegna sérkennslunemenda.
- Finnur viðeigandi námsefni og námsgögn í samráði við bekkjarkennara.
- Kemur að skimunum í lestri og stærðfærði og aðstoðar kennara með úrvinnslu niðurstaðna.
- Heldur utan um greiningagögn sérkennslu nemenda.
Starfslýsing sérkennara – endanleg útgáfa staðfest.pdf
Laun samkvæmt kjarasamningi Sambands íslenskra sveitafélaga og Kennarasambands Íslands vegna Félags grunnskólakennara.
Nánari upplýsingar veitir Eygló Aðalsteinsdóttir skólastjóri í síma 470-9020 eða á netfanginu [email protected]
Umsóknarfrestur er til og með 29. maí 2022.
Sótt er um starfið á ráðningavef Fjarðabyggðar starf.fjardabyggd.is með því að smella hér