Sérfræðingur við eftirlit með vinnslu matvæla
Sérfræðingur við eftirlit með vinnslu matvæla
Matvælastofnun leitar að jákvæðum og metnaðarfullum einstaklingum í tvö störf sérfræðinga í opinbert eftirlit með matvælum. Starfið er án staðsetningar, en allar starfsstöðvar Matvælastofnunar koma til greina sem starfsstöð. Um fullt starf er að ræða og krefst starfið talverðra ferðalaga um landið. Umsækjendur þurfa að geta hafið störf sem fyrst.
Helstu verkefni og ábyrgð
• Eftirlit með fiskvinnslum og fiskiskipum
• Eftirlit með löndunaraðstöðu og aflameðferð
• Eftirlit með mjólkurvinnslum
• Eftirlit með kjötvinnslum
• Önnur tengd eftirlits- og sérfræðistörf
Hæfnikröfur
• Krafa um menntun í matvælafræði, dýralækningum, líffræði eða aðra menntun sem nýtist í starfi
• Þekking á HACCP aðferðafræðinni
• Haldbær þekking og reynsla af vinnu við vinnslu matvæla
• Reynsla af opinberu eftirliti er kostur
• Góð íslensku- og enskukunnátta
• Góð almenn tölvukunnátta
• Sjálfstæði, nákvæmni og skipulögð vinnubrögð
• Vilji / hæfni til að starfa í teymi
• Góð framkoma og lipurð í samskiptum
• Bílpróf er skilyrði
Nánari upplýsingar um starfið veitir Dóra S. Gunnarsdóttir sviðstjóri Neytendaverndar og fiskeldis, [email protected] í síma 530 4800. Umsókn skal fylgja prófskírteini, ítarleg starfsferilsskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir því hvernig umsækjandi uppfyllir hæfnikröfur. Umsóknir skal senda i tölvupósti á netfangið [email protected] merkt „Eftirlit með matvælaframleiðslu“.
Umsóknarfrestur er til og með 19. maí n.k.
Öllum umsóknum verður svarað þegar ráðning liggur fyrir. Launakjör eru samkvæmt gildandi kjarasamningi fjármálaráðherra og viðkomandi stéttarfélags. Konur, jafnt sem karlar, eru hvattar til að sækja um starfið.
Nánari upplýsingar um stofnunina er að finna á www.mast.is