Sérfræðingur – losunarheimild ETS
Hefur þú áhuga á loftslagsmálum? Sérfræðingur – losunarheimildir ETS
Umsóknarfrestur: 15.11.2021 til 29.11.2021
Umhverfisstofnun auglýsir laust til umsóknar starf sérfræðings í teymi loftgæða og losunarheimilda í flugi og staðbundnum iðnaði.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Samskipti við og upplýsingagjöf til rekstraraðila, flugrekenda, stjórnvalda og systurstofnana vegna losunar gróðurhúsalofttegunda
- Yfirferð og utanumhald gagna frá rekstraraðilum og flugrekendum vegna losunar ETS-kerfisins og CORSIA
- Stjórnsýsluverkefni
- Þátttaka í sérfræðihópum á vegum ESB
- Útreikningar vegna úthlutunar losunarheimilda
Hæfniskröfur
- Háskólamenntun sem nýtist í starfi svo sem náttúruvísindi eða verkfræði
- Þekking á viðskiptakerfi ESB með losunarheimildir er kostur
- Þekking og reynsla af opinberri stjórnsýslu er kostur
- Þekking á EES gerðum og Evrópusamvinnu er kostur
- Gagnalæsi og færni í Excel er mikill kostur
- Góð samstarfshæfni og vilji til að vinna í teymi
- Gott vald á framsetningu efnis á íslensku og ensku bæði í ræðu og riti
- Frumkvæði og skipulögð og sjálfstæð vinnubrögð
Tengiliðir
Aðalbjörg Birna Guttormsdóttir – [email protected] – 5912000
Þóra Margrét Pálsdóttir Briem – [email protected] – 5912000
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélags hafa gert.
Starfsaðstaða sérfræðingsins getur verið í Reykjavík, Hellissandi, Patreksfirði, Ísafirði, Akureyri, Mývatni, Egilsstöðum, Hellu eða Vestmannaeyjum; allt eftir búsetu.
Gagnkvæmur reynslutími er sex mánuðir við ráðningu. Æskilegt er að sérfræðingurinn geti hafið störf sem fyrst. Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út.
Við hvetjum áhugasama til að sækja um, óháð kyni og uppruna.
Sjá nánari upplýsingar um Umhverfisstofnun á umhverfisstofnun.is
Starfshlutfall er 100 – 100%
Umsóknarfrestur er til og með 29.11.2021